Log in

… fara í fríið

Stuðningur Póstlisti og fréttbréf Hafa samband

Róstur eru grasrótarfjölmiðill sem hóf göngu sína í mars 2010 og kom þá út sem prentað blað einu sinni í mánuði. Árið 2011 fluttu Róstur sig yfir á internetið í þeim tilgangi að geta stundað fjölbreyttari fréttaflutning. Um er að ræða tilraunaverkefni sem er í stöðugri þróun og því er ekki útilokað að blaðið verði að nýju gefið út á prenti en það mun ráðast á komandi mánuðum.

Efnistök Rósta eru róttæk og gagnrýnin og leitast blaðið við að birta sjónarmið hópa sem fá lítið pláss í ráðandi fjölmiðlum. Leitast verður við að birta efni í pólitísku, efnahagslegu og félagslegu samhengi.

Róstur eru ekki flokkspólitískar og að baki miðlinum liggja engin tengsl né hagsmunagæsla við stjórnmálaflokka né fyrirtæki.

Rétt er að árétta að engin skrif eða annað efni sem lýtur að mismunun milli hópa eða kynja eiga heima á miðlinum. Róstur áskilja sér rétt til þess að hafna innsendum greinum sem hvetja til kúgunar, arðráns, kynjamisréttis, kynþáttahaturs, andúð gegn minnihlutahópum, spillingar, græðgi eða forræðishyggju.

Róstur eru reknar án hagnaðarsjónarmiða og fer allur hugsanlegur ágóði í rekstur miðilsins. Öll vinna fer fram í sjálfboðavinnu. Eingöngu er tekið við fjárframlögum frá einstaklingum.

Ritstjórn og almennar upplýsingar:rostur (hjá) rostur.org

Áskrift og dreifing: askrift (hjá) rostur.org

Stuðningur

Þú getur líka tekið þátt!

Þú getur skrifað og sent okkur greinar, gagnrýni, viðtöl eða annað sem þér dettur í hug að eigi heima í Róstum.

Ef þú hefur áhuga getur þú tekið þátt í skipulagningu og útgáfu blaðsins. Sendu okkur póst og segðu okkur aðeins frá þér.

Róstur eru gefnar út af hugsjón, án auglýsinga og gróðavonar. Því eru styrkir frá lesendum mikilvægir fyrir áframhaldandi útgáfu blaðsins. Fjárframlög fara í að greiða fyrir kynningu á verkefninu (sem þó verður haldið í algjöru lágmarki), kostnað vegna vinnuaðstöðu og hugsanlega fyrir atburði á borð við málfundi og námskeið. Komi blaðið út í formi tímarits munu frjáls framlög greiða kostnað við prentun.

Hægt er að leggja fjárstyrki inn á:
Reikning 1175-05-763142
kennitala: 620210-1100

Póstlisti og fréttabréf

Við erum að vinna í því að hægt verði að skrá sig á póstlista og fá sent fréttabréf á tölvupóstfang sitt einu sinni í mánuði. Í því kæmu fram helstu fréttir mánaðarins og nauðsynlegar tilkynningar.

Endilega kíktu aftur fljótlega!

Hafðu samband:

Sendu okkur tölvupóst með því að fylla út reitina hér fyrir neðan, eða senda úr tölvupóstfangi þínu á rostur[hjá]rostur.org. Ef þú vilt senda okkur lesendabréf til birtingar á rostur.org er tölvupóstfangið lesendabref[hjá]rostur.org.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að fylla út reiti nema annað sé tekið fram.

Nafn:

Tölvupóstfang:

Vefsíða (ekki nauðsynlegt):

Hvernig viltu að við flokkum bréfið?

Titill bréfsins (ekki nauðsynlegt):

Efni bréfsins:

Skrifaðu nafn blaðsins hérna svo við vitum að þú sért hugsandi: