Hlutverk vefsíðna er oftar en ekki að veiða neytendur með því að nýta sér tölfræði yfir fjölda heimsókna og selja svo síðarmeir þeim sem hafa ágirnd á auglýsingaplássi. Auðveld leið til að auka flettingar er að gera notendur að meðhöfundum efnis sem birtist á síðum í formi bloggs eða athugasemdakerfa (kommentakerfa). Á samskiptasíðum á borð við Facebook hefur slíkt gengið svo langt að notendur framleiða alfarið þá vöru sem seld er.
Róstur telja að athugasemdir undir greinum auki líkur á að vel unnið efni sé hraðlesið og athugasemdir fyrri lesenda fái í staðinn alla athygli þeirra sem síðar koma til að lesa. Ekki er þó vilji til að kæfa andsvör og gagnrýni á það efni sem birt er á síðunni. Til þess að koma til móts við bæði þessi sjónarmið hefur verið ákveðið að tileinka athugasemdum og lesendabréfum sérstakt svæði á síðunni. Reynt verður að svara gagnrýni og/eða spurningum eftir fremsta megni og leiðrétta villur eftir því hvers eðlis athugasemdirnar eru.
Róstur eru grasrótarfjölmiðill sem hóf göngu sína í mars 2010 og kom þá út sem prentað blað einu sinni í mánuði. Árið 2011 fluttu Róstur sig yfir á internetið í þeim tilgangi að geta stundað fjölbreyttari fréttaflutning.
Um er að ræða tilraunaverkefni sem er í stöðugri þróun og því er ekki útilokað að blaðið verði að nýju gefið út á prenti en það mun ráðast á komandi mánuðum... [Lesa meira]
Við erum að vinna í því að hægt verði að skrá sig á póstlista og fá sent fréttabréf á tölvupóstfang sitt einu sinni í mánuði. Í því kæmu fram helstu fréttir mánaðarins og nauðsynlegar tilkynningar.
Endilega kíktu aftur fljótlega!
Stuðningur
Þú getur líka tekið þátt!
Þú getur skrifað og sent okkur greinar, gagnrýni, viðtöl eða annað sem þér dettur í hug að eigi heima í Róstum. Ef þú hefur áhuga getur þú tekið þátt í skipulagningu og útgáfu blaðsins. Sendu okkur póst og segðu okkur aðeins frá þér. [Hafa samband]
Róstur eru gefnar út af hugsjón, án auglýsinga og gróðavonar. Styrkir frá lesendum eru mikilvægir til að koma til móts við þann kostnað sem til leggst. [Nánari upplýsingar]
Hægt er að leggja fjárstyrki inn á:
Reikning: 1175-05-763142
Kennitala: 620210-1100