fös. 15. júlí 2011
Rétt eins og maðurinn hér að ofan, munu Róstur fagna sumri með útréttar hendur í skyrtu, með fjallasýn að baki.
þri. 21. júní 2011
Annarsvegar er Geir „glæpamaður“ og hinsvegar fórnarlamb „pólitískra ofsókna“. Seinni skilgreiningin er runnin undan rifjum stuðningsmannahóps hans, sem fram að þessu hafa ekki séð ástæðu til þess að gagnrýna dómstóla, helstu varðmenn ríkjandi ástands. En nú þegar liðsfélagi þeirra hefur flækst í hið ómögulega er annað hljóð komið í strokkinn.
mið. 1. júní 2011
Adane Asres Ferede var handtekinn ásamt tveimur samlöndum sínum við komuna til Íslands 6. maí síðastliðinn, á leið til Kanada. Við komuna til landsins voru þau öll handtekin fyrir að ferðast á fölsuðum skilríkjum, svipt eigum sínum og tveimur dögum síðar dæmd til 30 daga fangelsisvistar auk greiðslu sakarkostnaðar.
þri. 24. maí 2011
Í nýlegri umfjöllun Rósta kom fram að ríki Evrópu hafi vilja til að loka landamærum að öðrum Evrópulöndum í þeim tilgangi að hefta straum innflytjenda og hælisleitenda sem komist höfðu inn fyrir múra virkisins Evrópu.
þri. 10. maí 2011
Flóttamenn eru ekki bara vegabréfs- og réttindalausir innan skrifræðis þjóðríkja heimsins heldur þurfa þeir einnig að leita hælis innan tungumálsins.
þri. 3. maí 2011
Þetta fólk er ekki mótmælendur, allra síst bara mótmælendur, heldur fólk með fætur, hendur, augu, eyru og munn, eins og annað fólk.
mið. 6. apríl 2011
Barátta launafólks hefur breyst úr and-kapítalískri réttindabaráttu í rólegt lull í hringi innan hins viðtekna, kapítalíska kerfis. ASÍ virðist ekki hafa nokkurn áhuga á að breyta þessari stefnu ef marka má langvarandi þjónkun sambandsins við auðvaldið og sátt þeirra við kerfið. Hefur launafólk misst alla sjálfsvirðingu?
mán. 21. mars 2011
Róstur fordæma stríð og vara við þeim leik sem ríkisstjórnir vopnasala ætla sér að leika. Stríð, í nafni hvers, fyrir hvern?