Eins og flestir vita þá vaxa töfrasveppir villtir á Íslandi í byrjun hausts. Sveppirnir sem um ræðir nefnast á íslensku Frelsistoppar eða Psilocybe semilanceata á latínu. Á hverju ári segja fjölmiðlar frá „svartklæddu fólki með hulin andlit“ sem tínir ofskynjunarsveppi á umferðareyjum og „kemur svo algjörlega sturlað upp á Vog og áttar sig ekki á stað og stund“ eins og Þórarinn Tyrfingsson læknir á Vogi orðar það. Vafalaust umgengst hann eingöngu fólk sem hefur slæma reynslu af vímuefnum og hefur hugsanlega leiðst út í mikla neyslu vegna þess að það hefur orðið undir í samfélaginu eins og greinin Hræðsluáróður Kastljóss bendir á. Karl Valsson yfirmaður fíkniefnalögreglunnar hefur litlar áhyggjur af þessu vegna þess að lítið sé um viðskipti með sveppina og Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir lögregluna gera þá upptæka ef þeir finnast.
Orð Þórarins bera ekki merki um hlutlausan dómbæran lækni og lögreglan hefur meiri áhyggjur af gróðahagsmunum undirheimana en áhrifum efnisins psylocibin sem er virka efnið í sveppunum. Nýleg rannsókn sem framkvæmd var við John Hopkins School of Medicine bendir til þess að orð Þórarins einkennist af histeríu og að lögreglan viti meira um jákvæð áhrif töfrasveppa en hún lætur uppi. Niðurstöður rannsóknarinnar eru samhljóma þeim sem talað hafa fyrir neyslu sveppa í hundruðir ára, hvort heldur töfralæknar ættbálkasamfélaga í Mið- og Suður-Ameríku eða svartklæddir íbúar í Reykjavík sem ganga álútir með hulin andlit um umferðareyjur borgarinnar á haustin.
Yfirskilvitleiki tíma og rúms eykst eftir að hafa neytt sveppanna samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar en eins og segir á vefnum Mother Jones sem skrifar um niðurstöðurnar þá er það eitthvað sem allir vissu fyrir. Áhugaverði hluti hennar er sá að ferðalagið hefur góð langtíma áhrif á vellíðan fólks. Gleði, hamingja og betri samskipti við fjölskyldu og vini mældist hjá 94% þátttakenda í könnun sem tekin var 14 mánuðum eftir að tilraunin hafði átt sér stað. Vísindamenn fullyrða einnig að hægt sé að koma í veg fyrir slæma upplifun af sveppunum ef umhverfið sé afslappað og jákvæður andi sé meðal þeirra sem koma saman.
Samkvæmt rannsókninni er neysla á töfrasveppum því mikilvæg fyrir geðheilsu fólks og til að mynda mótvægi við geðsjúkt vestrænt samfélagsmynstur.
Hægt er að nálgast niðurstöður rannsóknarinnar hér.

