13 til 19 ágúst 2011
»

Dagana 13. – 19. ágúst verður Róttæki sumarháskólinn haldinn í Reykjavíkurakademíunni. Samkvæmt heimasíðu Róttæka sumarháskólans er um að ræða tilraun til að tengja saman róttækan aktívisma og hugmyndir. Með því er átt við baráttu fyrir efnahagslegu réttlæti, umhverfisvernd, femínisma, lýðræði og réttindum minnihlutahópa. Markmiðið er að efla hreyfingu róttækra aktívista á Íslandi.

Upplýsingar um sumarháskólann er að finna hér og þar eru einnig leiðbeiningar um skráningu til þess að fá aðgang að námsefni. Þó er tekið fram að ekki sé skilyrði að skrá sig.

„Námsstofur og námskeið Róttæka sumarháskólans eru opin öllum, þar með talið þeim sem litla eða enga reynslu hafa af pólitískum aktívisma. Engar kröfur um fyrri skólagöngu eða starfsreynslu eru gerðar til þátttakenda“ segir á vef skólans.

Þáttökugjald er ekkert og fara námsstofurnar fram á kvöldin á virkum dögum og um miðjan daginn um helgar. Fjárhagsstaða og atvinnuhættir ættu því ekki að vera fyrirstaða.

Róstur vilja sér í lagi minna á námsstofu um grasrótarfjölmiðlum sem haldin verður af engum öðrum en: Róstum sjálfum!