Morðtólum frá Bandaríkjum, Noregi, Dannmörku, Ítalíu og Íslandi hefur verið smalað saman hér á landi í tilefni skemmtunar sem haldin er nú um mundir. Um er að ræða árlega skemmtun atlantshafsbandalagsins hér á landi. Hátíðin hefur verið nefnd Varnaræfingin Norður Víkingur í opinberum skjölum og hefur verið haldin árlega hér á landi seinastliðin ár.
Atburðir verða haldnir frá 3.-10. júní. Haft hefur verið eftir áreiðanlegum heimildum að erlendir bandamenn séu hingað komnir í miklum gleðihug og ætlunin sé að skemmta sér mikið. Fjöldi þáttakenda er 450 manns. Notuð verða 16 orustuþotur, herþyrla, 2 fjarskiptaflugvélar og þrjú varðskip auk allskynns sprengiefna og annarra skemmtilegheita, búast má því við miklu gamani og glensi í nágreni við æfingarsvæði.
Kostnaðurinn er einar litlar 36 miljónir íslenskra króna fyrir íslenska ríkið en samkvæmt heimildum landhelgisgæslunnar er þáttökugjald erlendra aðilla hærra þar sem heimamenn verði að hafa forskot þar sem verið sér að sprengja á íslenskri grundu.
Róstur óska Íslendingum til hamingju með hátíðarhöldin og þakka NATÓ fyrir að velja frekar að leika sér á íslenskri grundu með tiltöllega friðsömum hætti miðað við það mannsfall sem hefur orðið á öðrum leikvöllum sambandsins um þessar mundir, Líbía, Afganistan, og Pakistan svo fá ein dæmi séu nefnd.
Sjá upplýsingar frá landhelgisgæslunni hér
Sjá áróðursmyndband 365 miðla um hátíðarhöld í Helguvík í dag hér

[...] Róstur birta ljóð í tilefni af hátíðarhöldunum Norður Víkings á vegum Norður Atlantshafsbandalagsins (NATÓ). Sjá umfjöllun rósta hér. [...]