Fyrir skömmu tók barnaverndarnefnd Madridar (Madrileño del Menor y la Familia) þá ákvörðun að taka fimmtán mánaða gamalt barn frá móður sinni. Barnið var tekið af henni vegna þess að móðirin, Habiba að nafni, hafði ekki staðist sálfræði- og foreldrahæfnispróf, af þeirri ástæðu að hún gaf dóttur sinni enn brjóst eftir því sem barnið þarfnaðist. Brjóstagjöfin var sögð „skipulagslaus“ og „skaðleg barninu“.
Habiba, sem upprunalega er frá Marokkó, hafði flúið heimilisofbeldi og fékk inni í athvarfi fyrir mæður í Madrid á Spáni. Þar fékk hún hins vegar fyrirskipun um að venja fimmtán mánaða gamla dóttur sína, Ölmu, af brjósti. Til þess voru henni gefin lyf sem draga eiga úr mjólkurframleiðslu. Þegar hún neitaði var dóttirin tekin frá henni og sett í umsjá yfirvalda án þess að Habiba fengi upplýsingar um hvar dóttir hennar væri niðurkomin. Eftir því sem Róstur komast næst er Alma enn í umsjá yfirvalda, þremur vikum eftir að hafa verið tekin frá móður sinni.
Þess ber að geta að Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) mælir með brjóstagjöf „fram að tveggja ára aldri eða lengur“ og segir að „brjóstagjöf sé eðlileg leið til að veita ungum börnum þá næringu sem þeir þurfi á að halda fyrir heilbrigðan vöxt og þroska.“
„Dóttir mín er ekki lengur barnið sem ég þekkti, í fyrstu vildi hún ekki einu sinni horfa á mig… hún hefur misst hálft kíló, hún virðist mjög grönn, þetta er ekki barnavernd, hún er með bauga undir augunum, hún byrjaði að gráta um leið og ég tók hana upp en hætti snögglega eins og hún hefði ekki lengur orku til þess að gráta. Hún virtist ekki eins og dóttir mín, hún virtist vera dáin, dúkka.“ Sagði Habiba þegar hún fékk að heimsækja dóttur sína níu dögum eftir aðskilnaðinn.
Hinni 22 ára gömlu Habibu var lýst sem af spænskum yfirvöldum sem of óþroskaðri til að standa sig sem móðir, þrátt fyrir að hafa staðist sálfræðimat. Einnig hafa þau sagt hana „of baráttuglaða“ enda ætlast spænsk yfirvöld augljóslega til þess að ungar innflytjendamæður haldi kjafti og hlýði. Þeir sem þekkja Habibu hafa lýst henni sem þroskaðri og ábyrgðarfullri, en eðlilega reiðri yfir ósanngjarnri meðferð yfirvalda. Í stað þess að hlýða yfirvöldum gegn betri vitund ákvað Habiba að berjast fyrir barninu sínu en það hefur verið notað sem rök fyrir því að hún sé ekki nógu „tilfinningalega stöðug“ til að endurheimta dóttur sína.
Ibone Olza, geðlæknirinn sem annaðist sálfræðimat Habibu, hefur hvatt fólk til að safnast saman og mótmæla því að barnið hafi verið tekið af henni. Mótmælaaðgerðir hafa farið fram í nokkrum löndum og hefur undiskriftalisti verið settur af stað en hann má nálgast hér. Einnig hefur verið sett af stað facebook síða til stuðnings Habibu, þar sem hægt er að sjá upplýsingar um framvindu málsins og mótmælaaðgerðir.
- „Heiminum hefur verið snúið á hvolf. Fasistarnir sakfella dómarann“ – Ákærður vegna rannsóknar á mannshvörfum
- 5. tbl. – Heimskt er heimaalið barn
- Þess vegna er ekki hægt að like-a Róstur!
- Ég einfaldlega spyr! Hvers vegna flýtur náttúruvernd ennþá á yfirborðinu?
- Þrælahaldari dæmdur í fyrsta máli sinnar tegundar

