Tveggja sólahringa langt allsherjarverkfall, framfylgdu með stórum götumótmælum, hófst í Grikklandi í morgun en á morgun mun gríska þingið ákvarða um fyrirhugaðan niðurskurð til að koma til móts við gríðarhá alþjóðleg lán gríska ríkisins sem stefnt er á að taka vegna efnahagsástandsins í landinu. Niðurskurðurinn verður þannig framkvæmdur að kröfu lánveitendanna, Evrópusambandsins og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, sem í staðinn munu lána gríska ríkinu um það bil 110 milljarða evra. Tæki gríska ríkið ekki við láni ætti það á hættu að verða fyrsta ríkið á evrusvæðinu til að standa ekki skil á skuldum sínum.
Niðurskurðurinn mun vitanlega, eins og gengur og gerist, hafa verst áhrif á hinn svonefnda vinnandi mann eða lág- og millistéttarfólkið í landinu, sem nú fylla götur helstu borga landsins í andúð sinni á fyrirætlunum ríkisins. Meðlimir Kommúnistaflokksins þjófstörtuðu í gær þegar þeir hengdu stóra borða á Akrópólishæðina þar sem hvatt var til andófs gegn niðurskurðinum: Valdið er fólksins, gefumst ekki upp.
Meðal þeirra sem kölluðu til verkfallsins eru stóru stéttafélögin í landinu en einnig hin unga hreyfing Syntagma torgsins (The People’s Assembly of Syntagma Square) en torgið stendur beint fyrir neðan gríska þinghúsið. Syntagma hreyfingin spratt upp úr reglulegum stórum útifundum og mótmælum á torginu, og svipar hún til stóru fjöldahreyfinga hins svokallaða arabíska vors, Democracy-Real hreyfingunni á Spáni og íslensku uppreisninni veturinn 2008-2009 – bæði hvað kröfur og aðferðir varðar. Anarkistar eru svo auðvitað, eins og alltaf, stór hluti þeirra sem fylla göturnar í tilfellum sem þessum, með sín eigin áköll, greiningar og oft á tíðum eigin göngur.
Sent var út ákall um þátttöku í verkfallinu og hljómaði það svona:
Fyrir hvað stendur Syntagma hreyfingin?
Þó Syntagma hreyfingin, eða í það minnsta þau sem standa að vefsíðu hennar, lýsi sér sem „venjulegu fólki“ – „We are ordinary people. We are like you: people, who get up every morning to study, work or find a job, people who have family and friends. The priorities of any advanced society must be equality, progress, solidarity, freedom of culture, environmental sustainability and development, welfare and people’s happiness“ – má greina and-kapítalískan undirtón af þeirri gerð sem vaxið hefur fiskur um hrygg frá og með hinu alþjóðlega efnahagshruni og viðbrögðum stjórnvalda um allan heim við því.
Í yfirlýsingu frá hreyfingunni segir meðal annars:
The priorities of any advanced society must be equality, progress, solidarity, freedom of culture, environmental sustainability and development, welfare and people’s happiness.
These are inalienable truths that we should abide by in our society: the right to housing, employment, culture, health, education, political participation, free personal development, and consumer rights for a healthy and happy life.
The current status of our government and economic system does not take care of these rights, and in many ways is an obstacle to human progress.
Hreyfingin er mjög gagnrýnin á stjórnmálastéttina eins og hún leggur sig, og sérstaklega þá lýðræðisgerð sem stunduð er af ríkisstjórnum um allan heim. Lýðræði eigi að vera fólksins en í dag sé það hins vegar þannig, og það viti allir, að hin pólitísku kerfi hlusta ekki á fólkið og vinni enn síður fyrir hag samfélagins í sínum víðasta skilningi, heldur fyrst og fremst fyrir hagsmuni hinna ríku. Hreyfingin segir ríkjandi valdafyrirkomulag óréttlátt og það leiði til ofbeldis:
Accumulation of power in only a few creates inequality, tension and injustice, which leads to violence. Which we reject. The obsolete economic model fuels the social machinery in a growing spiral that consumes itself by enriching a few and sends into poverty the rest. Until the collapse. The sole purpose of the current system is the accumulation of capital to the detriment of efficiency and the welfare of society.
Og bæði náttúruvernd og samhliða gagnrýni á neyslusamfélagið eru því hluti af pólitík hreyfingarinnar:
Wasting resources is destroying the planet, creating unemployment. Consumers-citizens are the gears of a machine designed to enrich a minority which does not regard our needs..
Aditya Chakrabortty, blaðamaður á breska dagblaðinu The Guardian, fjallaði þann 19. júní sl. um Syntagma hreyfinguna og sagði hana vera nokkurs konar framvarðasveit evrópsku mótmælaöldunnar gegn niðurskurði. Grein Chakrabortty hófst með eftirfarandi orðum:
Athenians used to stop off at Syntagma Square for the shopping, the shiny rows of upmarket boutiques. Now they arrive in their tens of thousands to protest. Swarming out of the metro station, they emerge into a village of tents, pamphleteers and a booming public address system.
Since 25 May, when demonstrators first converged here, this has become an open-air concert – only one where bands have been supplanted by speakers and music swapped for an angry politics. On this square just below the Greek parliament and ringed by flashy hotels, thousands sit through speech after speech. Old-time socialists, American economists just passing through, members of the crowd: they each get three minutes with the mic, and most of them use the time alternatively to slag off the politicians and to egg on their fellow protesters.
Og viðmælendur hans lýsa hinu pólitíska andrúmslofti sem nú ríkir í Grikklandi:
Tassos doesn’t just support the protesters of Syntagma; he thinks they will go further. “Don’t be surprised if Athens goes up in flames,” the 50-year old says. “And don’t be sad, either.” His words initially sound melodramatic, but the anger keeps coming up. “Politicians now walk around with bodyguards,” says Aris Chatzistefanou, the co-director of Debtocracy, a film about the Greek crisis that has become a sensation. He quotes a newspaper report of how restaurateurs are taking down those cheesy framed photos of dining politicians, of how one government spokesman went to dinner a few weeks ago only for the rest of the restaurant to start shouting “You are eating the blood of the people”.
Eins og segir í umfjöllun Guardian eiga sér stað gríðarstórar samkomur á torginu, skipulagðar og framkvæmdar með mjög láréttum, oft á tíðum anarkískum hætti. Meðal útkomu samkomanna eru yfirlýsingar um hin ýmsu málefni og vekur sérstaklega athygli nýleg yfirlýsing, sem birt var þann 23. júní, þar sem lögreglumenn eru hvattir til að virða fólkið sem mótmælir á götum úti og aukinheldur að neita að framfylgja ólöglegum fyrirskipunum valdhafanna um að berja á fólki sem réttilega mótmælir ákvörðunum valdhafanna. Og samkoman var sammála um áhrif þess ef lögreglumenn brjóta á mótmælendum:
Otherwise, every police officer bears personal responsibility for his/her stance and behavior and he/she will suffer the consequences of his/her actions, as will the politicians that command him, that have delivered the country to foreign centers of power with loan agreements, memoranda and Μedium Term Austerity Programs. It’s the last big opportunity for the greek police and policemen and women, and we hope that many of them will act conscientiously and cross over to the side of the people.
Frá götum Grikklands
Verkföll og fjöldamótmæli á götum úti eru engin nýmæli í Grikklandi og miðað við þær fréttir sem borist hafa þegar þetta er skrifað virðist sem ástandið, þá sérstaklega í Aþenu, líkist því sem yfirleitt á sér stað á slíkum stundum. Átök lögreglu og mótmælenda eru auðvitað á sínum stað en sú nýbreytni á sér stað (Róstur vita ekki betur en að um nýbreytni sé að ræða) að lögreglan hefur tekið upp á því að kasta marmarabrotum í mótmælendur en hingað til hefur lögreglan mest megnis fengið marmarabrotin, sem koma ýmisstaðar frá – meðal annars torgum og inngöngum að neðanjarðarlestakerfinu – í sig en ekki kastað þeim til baka.
Það vakti sérstaka athygli í morgun þegar starfsmenn lestarkerfis Aþenu tilkynntu að þeir myndu ekki hlýða hefðbundnum fyrirskipunum stóru verkalýðsfélaganna um að stöðva samgöngur í borginni, heldur halda lestarkerfinu gangandi til þess eins að aðstoða fólk við að komast á milli staða og taka þátt í mótmælunum. Er þetta fyrsti sigurinn? – spurðu anarkistarnir sem standa að vefsíðunni From the Greek Streets (FTGS) sem munu fylgja atburðum næstu daga eftir, rétt eins og þeir hafa gert frá og með óeirðunum sem urðu um allt Grikkland í desember 2008 í kjölfar þess að grískir lögreglumenn skutu 15 ára dreng til bana í Exarchia-hverfinu í Aþenu.
Klukkan 15:00, að grískum tíma, lýsti FTGS ástandinu á Syntagma torgi með eftirfarandi hætti:
The main demonstration block has been in the square for approximately an hour. There police (32 riot police units in total protecting parliament) are throwing tear-gas extensively and are trying to break up the blocks. On Othonos street, 5-6 fascists were trapped in an arcade and the police who came to their rescue clashed with the people gathered there. For the past 40′ there are constant clashes on the lower part of Syntagma square, by Karageorgi Servias Str.There are also clashes on Stadiou Street. According to people at the square, police are firing tear gas every few seconds.
Einnig segir á síðunni frá atburðum dagsins í öðrum borgum Grikklands, til að mynda í Þessalóniku þar sem í það minnsta 10.000 manns gengu kröfugöngu um borgina. Í minni borgum á borð við Mytilini á eyjunni Lesbos og í Xanthi, í norðurhluta landsins, hafa einnig átt sér stað mótmæli á götum úti. Hafnarverkamenn í Pireus hafa svo frá því morgun komið í veg fyrir ferðir skipa til og frá þessum þessari helstu höfn landsins.
Á vefnum Contra Info, þar sem einnig birtast reglulegar uppfærslur um atburði dagsins, segir frá yfirlýsingu sem tæplega 500 fangar í grískum fangelsum, bæði konur og karlar, settu nafn sitt við og sendu frá sér í tilefni dagsins. Þar er fangelsiskerfið harðlega gagnrýnt:
Prisons are a mechanism which is based on poverty and reproduces inequalities and injustice. Prisons are an unjust and inhumane mechanism which demoralizes and enrages people. It is a class and antisocial mechanism which should be abolished. We know that there is no potential for basic living problems’ substantial solution inside prisons because, as we said before, life behind prison walls becomes even more difficult due to the crisis. Hence, the main slogan of inmates in Greek prisons today is “Immediate release of all prisoners.”
Today our own struggle cannot but be common. Common among all prisoners, common among all the oppressed of all nationalities who are in the streets and squares of Greek cities. Let’s start here and now a real confrontational struggle that will prevent the mid-term memorandum’s voting. And the only way to do so is to factually threaten the political and economic system’s function.
Contra Info segir einnig frá því að í það minnsta 800 karl- og kvenfangar hafi lýst því yfir að í tilefni dagsins muni þeir neita að fara inn í klefa sína um eftirmiðdegið, en það er partur af daglegri rútínu fangelsanna. Fleiri slíkar og svipaðar aðgerðir hafa verið boðaðar meðal fanga og segir í lok yfirlýsingarinnar:
On the day of the mid-term memorandum’s voting, the prisoners protest against the financial and political impasse in which the Greek society is situated, against the country’s occupation by the big Capital, against the parliamentary junta. This mobilization is also held in solidarity with those who fight in cities’ streets and squares across Greece.
Meðal annarra frétta af Contra Info eru frásagnir af tilraunum ný-Nasista og annarra fasista til að taka þátt í mótmælum dagsins en þeim hefur stöðugt verið bolað í burtu af og/eða lent í átökum við aðra þátttakendur og þá sérstaklega anarkista. Það, að fasistunm sé haldið fá þátttöku, er í anda þeirrar stefnu sem stunduð hefur verið á Syntagma torginu síðustu vikurnar þar sem fasistar hafa ekki verið velkomnir og stöðugt hefur verið komið í veg fyrir tilraunir þeirra til að blanda sér og sinni pólitík í þessa ungu hreyfingu.
Róstur lofa ekki…
…að hér verði stöðugar uppfærslur um atburði dagsins og næstu daga, heldur bendir lesendum á að skoða hinar ýmsu síður sem birta upplýsingar, fréttir, myndbönd og myndir með reglulegum eða óreglulegum hætti. Til að mynda má benda á fyrrnefndar síður: From the Greek Streets og Contra Info – en einnig reglulegar uppfærslur The Guardian.
Ekki er verra að geta horft á atburðina á Syntagma torginu í beinni útsendingu hér:
LIVE STREAMING: Γενική Απεργία ενάντια στο... von News247
Til viðbótar við þetta má svo benda á að Graeme Wearden, frá viðskiptablaði The Guardian, hefur tekið saman helstu dagsetningar komandi vikna og mánuða sem varða skuldir, lán og niðurskurð gríska ríkisins.

Wearden hefur einnig tekið saman undanfara og ástæður efnahagsástandsins sem lesa má hér.






